Fréttir Narfa

Narfi

18.01.2007 21:26:39 / narfi

Ný síða.

Kominn með nýa síðu. http://www.123.is/norfus

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 20:26:16 / narfi

Stundataflan mín.

Búinn að fara á netið og gá hvernig stundataflan mín er núna. Mánudagur. 08:15-11:20 svo er eiða og byrja aftur 13:15-17:40. Þriðjudagar. 9:00-11:20 og byrja svo aftur 13:15-16:10. Miðvikudagar. 08:15-17:40. Fimmtudagar. 9:00-11:20 og byrja svo aftur 13:15-17:40. Föstudagar. 08:15-11:20 og svona er stundataflan mín. ég er í STÆ 102   DAN 102 INK 102 INR 106 TEH 203 og GLU 104. nenni ekki að segja hvenar ég er í þessum áföngum.

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 19:21:36 / narfi

Jólin búinn.

Jæja þá eru jólin búinn og skólinn tekur við á morgun. Ég vakna alla morgna kl: 08:15 og er til 16:10 á mánudögum og fimmtudögum að mig minni og 14:40 á þriðjudögum og Miðvikudögum og svo á Föstudögum er á búinn 12 eitthvað man ekki. Er ekki með stundatöfluna fyrir framan mig einmitt núna sko. Nenni ekki að fara á netið til að gá, veit að þetta hljómar asnarlega því að ég er einmitt á netinu þegar ég er að skrifa þetta blogg en svona er þetta bara. En já ég s.s byrja á morgun í skólanum sem er bara ágætt skal eg segja ykkur.
En ég er að fara að borða núna svo ég bara skrifa seinna bless bless.

Bið að heylsa öllum. Kv. Narfi Freyr.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 09:56:40 / narfi

Jólafrí.

Jæja þá er maður loksins kominn í jólafrí :haha: . En samt ekki allvevg því að ég fer að vinna hjá póstinum. En já ég var í síðasta prófinu áðan. Ekkert smá gott að þetta sé bara búið. En ég ættla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili en núna er bara að bíða og sjá hvað maður fær úr prófunum..

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 19:30:57 / narfi

Concert í Ketilhúsinu.

Góðann daginn eða ég ætti kanski frekar að segja góða kvöldið því að klukkan er jú að verða hálf átta.
   Ég var að spila á Concert í Ketilhúsinu í gær og það var geðveikt gaman að vera með svona stórri hljómsveit og fá að spila, geðveikt :haha:
   Ég var að vísu að farast úr stressi áður en við byrjuðum að spila og svo var ég svo stressaður fyrir framan bassatrommuna að ég reyndi að líta á stjórnandann og nóturnar og tíndi svo línunni þar sem við vorum á nótunum en ég náði að redda mér fyrir horn því að ég mundi hvernig þetta hljómaði og spilaði bara eftir því þannig að þeð reddaðist, eða allavega var kennarinn minn og stjórnandinn held ég bara allveg sáttir við það sem ég var að spila allavega kennarinn sko hann sagði. Hey Narfi that was great eða eitthvað svoleiðis. Þannig að ég er bara mjög sáttur með útkomuna í gær.
   En ég bið að heilsa í bili allavega.

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 20:24:24 / narfi

Vetur Vetur Vetur

Já núna er sko kominn ekta Íslenskur vetur. Það er svo sem ágætt ef snjórinn verður þá en fer ekki og kemur aftur og fer svo, þoli ekki svoleiðis, annaðhvort verður hann bara á jörðu niðri og þekur allt eða þá að það verði enginn snjór.
En það er eitt sem ég vil koma á frammfæri, það er það að prófin eru allveg að fara að skella á og það eru sumir sem kvíða allveg óhemmjumikið fyrir þeim og ég get stundum verið einn af þeim. En það er einhvernveigin þegar ég sest við borðið sem ég tek prófið á þá róast ég pínu og verð svo aftur stressaður þegar kennarinn leggur prófið á borðið og fyrstu svörin eru svona pinu illa skrifuð fyrir skjálfta í höndum en svo róast ég allveg þegar ég er búinn með fyrstu 2 svörin og þá kemur þetta allt. En ég ættlaði nú ekki að tala um þetta en þetta kom bara í heusinn á mér ellt í einu eins og allt annað sem ég skrifa hérna. Þetta er allt sem bara kemur upp í heusinn á mér, ekkert fyrir fram ákveðið nema þá að það sé eitthvað voðalega áríðandi. Eins og að ég væri að deyja eða eitthvað svoleiðis sko. En núna er ég bara fainn að bulla einhverja bölvaða vittleisu þannig að ég held að það sé bara best að ég hætti í kvöld. En eitt enn ég er að fara að gera eitthvað verkefni um klæðningar húsa í smíðum sem sagt í útveggjaklæðningu 102.
Já þá á ég s.s að fjalla um 8 gerðir af útveggja klæðningar á húsum og segja smá frá húsinu hvort að það hafi verið gert við það eða byggt upp eða bara að segja pínu frá sögu hússinns.
En núna er ég hættur. Bless.
Heyriði en annars eitt annað ég lá eitthvað upp í rúmi í dag og Auður vinkona ömmu var í heimsókn í dag og var búin að vera eitthvað í heimsókn í klukkutíma eða meira og ég var að verða geðveikur á þessu því að ég heirði alltaf í þeim frammi í stofu, sem sagt ég var að reina að sofa pínu því að ég var að deyja úr þreitu, jaja segiði bara að ég sé aumingi sama er mér. En svo hélt ég að hún væri að fara og búin að segja bless bless og eitthvað, neinei þá fer hún að spurja um einhverja konu hvernig hún hafi það og eitthvað og þá upphófust umræður um það í korter til hálftíma í við bót og hún búinn að segja marg oft bless en amma náði alltaf að segja eitthvað í milli ble og ss tveggja þannig að alltaf lengdust samræðurnar en ég held að ég hætti núna áður en ég fer að skrifa einhverja meiri vittleisu hérna.
Þetta er bara að vera eins og hjá þeirri gömlu í dag en núna er ég hættur, en ég held bara sveimer þá að þetta sé ein lengsta færsla sem ég hef skrifað frá upphafi fá því að ég byrjaði að blogga.
Bless ég er hættur.
KV. Narfi Freyr.

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 15:27:25 / narfi

Ekki allveg nógu sáttur...

Já ég var á hljómsveitaræfingu með lúðrasveit Akureyrar í gær og það gekk nú svona upp og niður. Ég var að spila og laust og ég dempaði hljóðið ekki nóg og ég gerði þetta og hitt ekki rett, mig langaði hreinlega að ráðanst á hljómsveitar stjórnandann og ja bara ráðast á hann því að hann var að ráðast á mig þetta kvöld. En ég bar tók þessu rólegur og gerði bara það sem hann sagði þannig að allir urðu sáttir. Ég réðst bara á hann í huganum. Það er best að ráðast á manneskju þannig ef maður hefur e-h þörf fyrir að ráðast á e-h. Það er mín tillaga.

En nóg að rugli frá mér um þetta.

Já ég s.s er að spila á stóra bassatrommu í hljómsveitinni og það verða tónleikar 26 nóv bara svona fyrir þá sem ekki vita...;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 16:56:32 / narfi

Ekkert svakaleger fréttir.

Komið þið nú sæl og blessuð öll sömul, það er nú ekki mikið að fretta frá mér frekar en fyrri daginn, ju nema það að það er búin að vera snjókoma  í allann dag og ég búinn að vera úti að vinna í bústaðnum í allann dag. Ekki gaman ískalt bara í kuldagalla og læti.

En já það er s.s kominn hálka hérna á AK og bara föl yfir öllu :evil:  en við skulum nú ekki vera svekt út af því að þetta gertist á hverju ári. Þannig að svoleiðis er það. En ég held að það eigi bara að vera e-h skíta veður út vikuna sem er ekki gaman.

En ég verð nú bara að segja það að ég er ekki frá því að þetta er öruglega lengsta blogg sem ég hef skrifað í langann tíma sem er nátturlega bara gott, og vonandi að maður fara að gera það vana að blogga svona mikið allavega 1 sinni í viku :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 17:58:26 / narfi

Orðinn lasinn. :evil:

Já ég segi nú bara ekkert allt of gott, því að ég held bara að ég sé orðinn lasinn á ný :$ sem er ekki gott.
En ég vona samt að ég nái að hrista þetta úr mér eins fljótt og auðið er.
Þetta er allveg tíbíst því að ég verð alltaf lasinn þegar það verður svona snöggt kallt eins og það varð núna um daginn. Ég greinilega þoli það illa því að ég verð alltaf lasinn. En það þíðir víst lítið að væla út af því og bara drekka heitt kakó og láta sér ekki verða kallt.

Þangað til næst.
KV: Narfi Freyr.

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 00:31:01 / narfi

9.11

Afhverju var ráðist á tvíburaturnana 11.9??

11.9 - Afhverju?


1. Í New York City eru 11 bókstafir

2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir

3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.

4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir

Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:

1. New York er 11. fylkið

2. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)

3. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 = 11)

4. Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)

5. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11)

Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....

1. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)

2. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)

3. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)

4. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers.

... og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:

Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins

* Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur:

"For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle.

The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and

while some of the people trembled in despair still more rejoiced:

For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace."

Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum.

Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða? Prófaður þá eftirfarandi:

* Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:

1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.

2. Litaðu Q33 NY

3. Breyttu stafastærðinni í 48

4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1) ÓGNVEKJANDI!!

 

 



 

 



 

 




» 4 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 20:38:44 / narfi

Flugdrasl

Við Hrannar komumst að því í dag að vélinn í flugvélinni minni er bara ónýt því að hann skipti um benzinslöngur og herti á þéttingunni við tankann fyrir mig og svo  setti hann í gang í gær og það var sama ruglið í gangi hún gekk ekkert og hann útskurðaði bara kertið ónýtt. Þannig að ég fór í bæinn í dag með mömmu í klippingu og nýtti tíman þar á milli til að renna til Þrastar og keypti tvenn kerti til viðbótar og svo fórum við upp á flugvöll og það var bara sama ruglið í gangi þannig að þá vissum við það að vélin hliti vara að vera biluð eða ónýt.
   Ef það er hedpakkning í vélinni þá er vélin definetly ónýt, sem er ekki gott. En vonandi fæ ég þá bara nýa vél frítt því að hún á ekkert að fara svona.

Kv: Narfi Freyr

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 09:37:00 / narfi

Sjallinn æi 1. skiptið.

Já ég s.s fór í fyrsta skiptið í sjallann á laugardaginn á Sálina hanns Jóns míns, Það var að vísu allveg ágætt. Ekkert skemtilegasta ball sem ég hef farið á.
En vonandi þegar ég fer næst að það verði aðens betra.
Ekki það að Sálin hafi ekki verið góðir, heldur var einn sem var svolítið duglegur í að vilja bara labba um sjallann og dansa minna. Ekki ég. Nefni engin nöfn.

Kveða.
Narfi Freyr.

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:37:07 / narfi

Puttar og smölun.

Er að verða góður í puttunum. Lét taka saumana úr löngu töng um daginn, man ekki allveg hvenar en minnir að  það hafi verið á fimmtudaginn síðasta. Þumallinn er að gróa vel þannig að þetta lítur allt vel út.
Var síðan í göngum um helgina eða s.s var að smala.
Það gekk nú ekkert mjög vel því að það var svarta þoka maður sá ekki nema ca. 50 - 100 m fram fyrir sig og svo í þokkabót heirði maður ekki neitt í neinum því að ef hann var farinn e-h frá manni s.s úr sjónvídd þá var bara eins og maður væri kominn við hliðina á vegg því að maður heirði ekki neitt eða ég heyrði allavega ekki neitt.
Var svo kominn upp á e-h fell þarna fyrir austann og var tíndur, vissi ekkert hvar ég var og hugsaði bara að ef ég héldi áfram þá hliti ég að enda e-h staðar eða sjá e-h.
En sem betur fer áhvað ég að labba niður fellið og gá hvort að ég sæi ekki e-h, sem ég gerði svo. Þar voru þeir pabbi, Björgvin Haukur og Geiri.
Björgvin sagðist hafa heyrt e-h blístur og raul, þá var það ég sem var að blístra.
Blístraði ein 3 lög með bíttlunum og raulaði lagið Hate me með Blue October.

Svo þegar við komum í réttina þá kom í ljós þegar var búið að rétta að Óla bónda vantaði 80 kindur sem voru upp á heiði e-h staðar.

En held að þetta sé orðið gott í bili.
 
 "Bið að heilsa" 
KV: Narfi F. Narfason.

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 20:40:19 / narfi

hitt og þetta aðalega hitt ;)

Þá er maður kominn með nýa og betri tölfu, sem er mikið fljótari en sú gamla :). En Já það var semsagt fyrsti skóladagurinn í dag. Fór ekki fyrr en um tíu leitið því að það er alltaf verið að tala við nýnemana í fyrsta tíma og kynna þeim fyrir skólanum og starfssemi hans og þess háttar.
Fer aftur íslensku á morgun því að ég fór og lét breyta stundartöflunni minni.
Lét s.s setja inn ensku þannig að ég fæ ekkert að sofa út núna :( en það er líka bara hið besta mál.

Hérna er bara rigning en ekkert mjög kallt samt.

Amma gerði það nú gott í dag, við fórum sum sé í verslunarleiðangur í dag í Nettó og versluðum dálítið og svo þegar það kom að borgun þá komumst við að því að sú gamla var ekki með veskið sitt eða ju hún var með það en ekki peningaveskið sitt. Það lá upp á eldhúsborði heima í blokk, en það reddaðist allt, sú gamla brunaði heim í flíti að ná í veskið til að borga og hefur verið í um 15 mín. sem er ekki mjög lengi af henni að vera.

En held að þetta sé nú orðið gott í bili.

KV. Narfi Feryr.

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 17:35:10 / narfi

smá ferðasaga.

Jæja þá er ég kominn heim. Er í Reykjarvík eins og er, en er að fara á Ísland - Spán í kvöld og heim á morgun.

Þetta var geðveikt gaman þarna úti en bara svolítið heitt, en það vandist nú samt.
Gerðum margt skemtilegt saman fórum á banana, skoðuðum eldfjöll og hella og ja bara margt.
Flugið lengdist um 2 tíma í dag, af því að við þurftum að millilenda.

En flugið gekk nú bara vel fyrir sig og gott veður á leiðinni nema rett fyrir utan landið var smá ókirð.
 
Núna ættla ég að fara og leggja mig eftir langan dag frá 4:20 eða eitthvað svoleiðis í nótt.

KV. Narfi.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
Mínar síður
Leitarsíður
Video